Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 318/2018 um úthlutunina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018:
Vöruliður: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
kg |
% |
kr./kg |
|||
0202 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst |
01.05. - 31.12.18 |
99.333 |
0 |
0 |
0203 |
Svínakjöt, fryst |
01.05. - 31.12.18 |
166.667 |
0 |
0 |
0207 |
Kjöt af alifuglum, fryst |
01.05. - 31.12.18 |
218.667 |
0 |
0 |
0208.9003 |
Rjúpur, frystar |
01.05. - 31.12.18 |
66.667 |
0 |
0 |
ex 0210 |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) |
01.05. - 31.12.18 |
33.333 |
0 |
0 |
ex 0406 |
Ostur og ystingur (**) |
01.05. - 31.12.18 |
36.667 |
0 |
0 |
0406 |
Ostur og ystingur |
01.05. - 31.12.18 |
50.000 |
0 |
0 |
1601 |
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum |
01.05. - 31.12.18 |
66.667 |
0 |
0 |
1602 |
Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum |
01.05. - 31.12.18 |
80.000 |
0 |
0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. apríl 2018.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,
28. mars 2018.