Hoppa yfir valmynd

33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar​

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs 

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. 

Breytingar á ramma milli áranna 2023 og 2024

Heildargjöld málefnasviðs 33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar árið 2024 eru áætluð 172.327,4 m.kr. og aukast um 31.419,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 18,2%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

33.10 Fjármagnskostnaður 

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024 Framkvæmdaraðili Breyting á fjárveitingu til verkefnis
Markmið 1: Viðhalda sjálfbærni skulda ríkissjóðs
Hagstæð fjármögnun ríkissjóðs með jöfnu afborgunarferli og lágmörkun áhættu. Fjármála- og efnahagsráðuneyti Innan ramma
Uppbygging áhættustýringar fyrir ríkissjóð. Fjármála- og efnahagsráðuneyti Innan ramma
Markmið 2: Lágmörkun fjármagnskostnaðar að teknu tilliti til áhættu
Endurfjármögnun útistandandi skulda þegar tækifæri gefast á betri vaxtakjörum. Fjármála- og efnahagsráðuneyti Innan ramma
     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 92.239,2 m.kr. og hækkar um 12.543,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 8.478,3 m.kr. vegna innlendra lána. Þar af hækka vextir af langtímalánum um 6.414,9 m.kr. og skammtímalánum um 2.063,4 m.kr.
  2. Vextir af erlendum lánum hækka um 4.737,8 m.kr. á milli ára vegna forsendu um nýja erlenda lántöku á hærri vöxtum en þeir erlendu skuldabréfaflokkar ríkissjóðs sem nú eru útistandandi bera.
  3. Verðbætur á höfuðstól verðtryggðra lána ríkissjóðs lækka um 672,6 m.kr. frá fjárlögum ársins 2023.

33.20 Ríkisábyrgðir

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Draga úr ríkisábyrgðum

Endurlána ríkisfyrirtækjum og sjóðum í stað þess að heimila lántökur með ríkisábyrgð.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 110 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum.

33.30 Lífeyrisskuldbindingar

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Minnka ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar
Ríkissjóður greiði 8 ma.kr. inn á lífeyrisskuldbindingar sínar.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 79.978,2 m.kr. og hækkar um 18.876 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Á árinu 2022 hækkaði hrein lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs um 78.552 m.kr. vegna verðbólgu, launahækkana og neikvæðrar ávöxtunar. Gert er ráð fyrir að heildarlífeyrisskuldbinding ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins nái hámarki um þessar mundir en fari svo lækkandi sem leiðir til lækkandi gjaldfærslu að jafnaði á næstu árum.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum