Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðalnámskrár grunnskóla: Heimilisfræði, Íþróttir - líkams- og heilsurækt, Kristinfræði, siðfræði og trúarbragðafræði, Listgreinar

Vísað er til dreifibréfs menntamálaráðuneytisins, dags. 22. desember 2006, varðandi breytingar á grunnskólalögum og endurskoðun á almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla frá 1999.

Til grunnskóla, sveitarfélaga, skólaskrifstofa
og ýmissa hagsmunaaðila

Vísað er til dreifibréfs menntamálaráðuneytisins, dags. 22. desember 2006, varðandi breytingar á grunnskólalögum og endurskoðun á almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla frá 1999.

Með bréfi þessu vekur ráðuneytið athygli á að fjórar greinanámskrár hafa verið gefnar út á rafrænu formi á námskrárvef ráðuneytisins. Þær eru:

Breytingar á námskránum taka mið af þróun skólastarfs undanfarin ár.

Í auglýsingu um gildistöku aðalnámskrár grunnskóla kemur fram að námskrárnar komi til framkvæmda í skólum frá og með skólaárinu 2007-2008 eftir því sem við verður komið og skulu að fullu vera komnar til framkvæmda eigi síðar en að þremur árum liðnum frá gildistöku. Jafnframt fellur aðalnámskrá grunnskóla frá 1999 úr gildi.

Menntamálaráðuneytið væntir þess að þessum upplýsingum verði komið á framfæri þar sem það á við.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum