Hoppa yfir valmynd
17. maí 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Skapa.is - upplýsingasíða og nýsköpunargátt fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki

Ólafur Örn Guðmundsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. - mynd

Ný og endurbætt Skapa.is er komin í loftið. Um er að ræða nýsköpunargátt, upplýsingaveitu og fræðsluvef fyrir frumkvöðla og aðra aðila sem eru að stíga sín fyrstu skref í nýsköpunarumhverfinu.

Skapa.is er ætlað að vera einn af grunninnviðum í stuðningi við frumkvöðla til að láta hugmyndir þeirra verða að veruleika.

„Það er ánægjulegt að nýsköpunargátt fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki sé orðin að veruleika í samstarfi við skapa.is. Nýsköpunarumhverfið hefur kallað eftir því að upplýsingar verði aðgengilegar á einum stað sem styður við öfluga nýsköpunarumhverfið á Íslandi,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Skapa.is er gjaldfrjáls og opin öllum. Fræðsluhlutverk síðunnar getir öllum kleift að fræðast um nýsköpun og fá stuðning til að taka hugmyndir sínar áfram. Skapa.is var upphaflega sett á laggir í upphafi árs 2023 af Ólafi Erni Guðmundssyni en hefur nú fengið stærra hlutverk með stuðningi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.

Leiðarvísir í frumkvöðlafrumskóginum

Meðal þess sem finna má á Skapa.is er nýsköpunardagatal þar sem upplýsingar er að finna um alla helstu viðburði tengda nýsköpun sem eru á döfinni. Einnig má nálgast styrkjadagatal þar sem umsóknarfrestir styrkja eru tilgreindir ásamt upplýsingum um alla þá íslensku styrki sem frumkvöðlar og sprotafyrirtæki geta sótt um.

Skapa.is sinnir einnig mikilvægu fræðsluhlutverki fyrir bæði frumkvöðla og fjárfesta. Þar má m.a. finna greinargóðar upplýsingar og gagnlega hlekki um fyrstu skrefin í nýsköpunarumhverfinu, nýsköpun á landsbyggðinni, nýsköpunar- og viðskiptahraðla, klasa, setur, ýmis verkfæri og mismunandi fjármögnunarleiðir, fjárfestingasjóði, englafjárfestingar o.fl. Þar að auki er notendum beint á leiðir til að sækja ráðgjöf, endurgjöf og aðgengi að mentorum fyrir nýsköpunarverkefni.

Nýsköpunargáttin er einnig vettvangur fyrir nýsköpunarfyrirtæki til að sjá hvort þeirra lausnir geti leyst áskoranir hins opinbera. Þar er að finna upplýsingar um opinberar stofnanir sem leita til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja til að leysa þær áskoranir sem glímt er við og í framhaldinu mögulega semja um kaup á lausninni.

Fagnað í Nýsköpunarvikunni (Iceland Innovation Week)

Opnun íslensku nýsköpunargáttarinnar Skapa.is verður fagnað með gleðistund í dag, föstudaginn 17. maí kl. 16:45, í Flamongo pop-up rými á Hafnartorgi, en viðburðurinn er liður í Nýsköpunarvikunni (Iceland Innovation Week) sem nú stendur yfir. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ólafur Örn, stofnandi nýsköpunargáttarinnar, munu ávarpa gesti og gleðjast yfir opnun Skapa.is og frjóu nýsköpunarumhverfi Íslands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum